Versli versl
Jæja, þá erum við búin að heimsækja bankann og merkilegt nokk þá voru enn eftir ferðatékkar í bankanum þegar við löbbuðum út :o) Konan sem afgreiddi okkur sagði okkur að KB banki væri hættur að selja ferðatékka!!!! Haldið að það sé! Þvílík þröngsýni og léleg þjónusta þar á bæ! Það eru sko ennþá til lönd þar sem er sko ekkert auðvelt að vera með kort, þ.á.m. Malaví. Í Malaví eru engir hraðbankar og gæti tekið bróðurpartinn úr degi að fá pening út á kort í banka.
Svo fórum við í apótek og gerðum stórinnkaup (á okkar mælikvarða). Keyptum örugglega nokkur kíló af malaríutöflum og svo eitt og annað smotterí. Við vorum búin að ákveða að kaupa sokka sem eiga að halda blóðstreyminu gangandi í fótunum á manni og þ.a.l. agalega góðir fyrir löng flug og aðrar langar setur. Það lá hins vegar við að Stefán tapaði sér alveg þegar hann rak augun í merkingu á sokkunum sem ég dró fram, "70 den"! Hann ætlaði sko ekki í einhverjar sokkabuxur!!!! Eitthvað sem heitir "den" er sko of kellingalegt fyrir hann. Sem betur fer fundust líka sokkar sem reyndust Stefáni þóknanlegir. Orðið "den" fannst sko ekki á þeim sokkapakka! Til að hafa Stefán góðan er líklega öruggast að taka fram að ég endaði líka á að kaupa svoleiðis sokka...
Það er áhugavert að á fylgiseðli malaríutaflanna stendur að lyfið virki gegn slæmum gelgjubólum og klamydíu en ekki minnst á malaríu!!!

4 Comments:
Ef satt reynist að sokkarnir haldi blóðstreyminu í fótunum á manni gangandi þá væri mjög gagnlegt að María væri alltaf í svona sokkum á kvöldin. Ég er nefnilega ekki viss um að blóðið renni í fótunum á henni á kvöldin, heldur bara renni niður í fæturna og kólni svo og kólni þangað til fæturnir geta ekki kólnað meira!!
By
Nafnlaus, at 22.8.05
Hihihi, kannski þú verðir að vera alltaf í sokkunum, María :D. Hihi, hvað ætli venjulegir kallasokkar séu mörg den? Eins gott að forðast þetta orð ef maður er að framleiða sokka á kalla :D.
By
Nafnlaus, at 23.8.05
Ég held að Stefán væri nú bara sætur í sokkabuxum:þ
By
Nafnlaus, at 23.8.05
HAHAHAHAHAHAHAHAHAHA!!!! :D
By
Nafnlaus, at 24.8.05
Skrifa ummæli
<< Home